Velkomin á vefsíðu Saving Iceland! Ef þú ert hér í fyrsta skipti lestu þá um Alþjóðleg mótmæli Saving Iceland og Um Saving Iceland og lestu nýjustu fréttirnar hér að neðan. Íslandi ógnað sýnir öræfin sem við verðum að vernda fyrir græðgi ál- og orkufyrirtækjanna, sem starfa markvisst að því að eyðileggja íslenska náttúru með orkuframleiðslu fyrir stóriðju. Horfðu á myndbönd og skoðaðu myndir frá starfi okkar síðustu árin, lestu tímarit okkar Voices of the Wilderness og skráðu þig á póstlistann okkar til að fá tilkynningar um nýtt efni á síðunni.
Velkomin!
Glæpavæðing mótmæla
Helga Katrín Tryggvadóttir
Hugsandi.is
There is still value, I believe, in attempting to „speak truth to power“.
Þetta sagði mannfræðingurinn Nancy Scheper-Hughes og átti þá fyrst og fremst við að það væri skylda mannfræðinga að segja sannleikann frammi fyrir valdinu. En þessi orð eiga ekki bara við um mannfræðinga, heldur okkur öll. Það er mikilvægt að við sammælumst um það að frammi fyrir óréttlæti sé nauðsynlegt að þegja ekki. Með því að þegja, og líta undan, erum við í raun að samþykkja það og í því felst möguleikinn á glötun mannkyns. Read More
Jan 21 2011
2 Comments
Ímynduð Eco-hryðjuverkaógn og árásir lögreglu á undirstöður lýðræðisins
Freedomfries
Það er löngu kominn tími til að við Íslendingar tökum til endurskoðunar hvernig rætt er um aktívista almennt og sérstaklega umhverfisaktívista. Það er ekki hægt að horfa framhjá því að þessi umræða hefur einkennst af ákveðinni móðursýki og fórdómum. Fyrir nokkrum árum var mikið talað um „atvinnumótmælendur“ – og í kommentakerfum og á moggablogginu er alltaf hægt að ganga út frá því sem vísu að finna einhverja kjána sem þykjast vita allt um að vestrænum samfélögum stafi alvarleg ógn af öllum þessum ungmennum – að hér séu á ferð hættulegir róttæklingar sem séu allt eins líklegir til að grípa til ofbeldisverka til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Read More
Áliðnaðurinn: Umhverfismál á heimsvísu
Bergur Sigurðsson og Einar Þorleifsson
Álframleiðsla byggir á námavinnslu á stöðum þar sem er að finna sérstaklega álríkan rauðan jarðveg sem nefnist báxít og verður til á löngum tíma við mikla útskolun efna á úrkomusvæðum sitt hvorum megin miðbaugs. Námavinnslan fer vanalega þannig fram að flett er burt gróðurþekju til þess að komast að báxítlögunum sem eru misþykk og oft ekki nema 2-4 metrar.
Báxítið er numið brott og flutt í landfrekar súrálsverksmiðjur þar sem jarðvegurinn er leystur upp með vítissóda og kalki og síðan er súrálið (Al2O3) einangrað frá eðjunni.Vinnslunni fylgir mikil og skaðleg rykmengun og gríðarleg myndun eitraðra úrgangsefna, þ.e. rauðeðju sem hefur hátt sýrustig og í sumum tilfellum þungmálma. Slys þar sem stíflugarðar um eðjulón bresta komast sjaldan í hámæli ef frá er talið slysið í Ungverjalandi fyrr í vetur. Þar var hætta á að eitraður leirinn myndi flæða óhindrað út í Dóná og spilla vistkerfi hennar allt til Svartahafsins, m.a. Dónárdeltunni, einu merkilegasta votlendissvæði jarðar þar sem milljónir fugla hafast við. Read More
Rangfærsluruna Ragnars
Bergur Sigurðsson og Einar Þorleifsson
Það er lengra mál en svo að rúmist í einni grein að fjalla um allar rangfærslurnar sem áliðnaðurinn teflir fram til þess að fegra verkefni sín og ginna samfélög til þess að kosta þau.
Áróðursmaskínurnar ganga svo langt að halda því fram að ál sé á einhvern hátt jákvætt fyrirbæri í umhverfislegu tilliti. Sannleikurinn er sá að áliðnaðurinn er námuiðnaður sem veldur verulegu umhverfisálagi, eyðir regnskógum og samfélögum frumbyggja og spillir vatnalífi og vistkerfum. Hvort heldur sem álið er notað í farartæki, umbúðir eða byggingarefni er í flestum tilvikum hægt að nota vistvænni efni.Af nógu er að taka þegar kemur að rangfærslum iðnaðarins en í þessari grein verður látið duga að rekja helstu rangfærslur Ragnars Guðmundssonar, forstjóra Norðuráls, í Fréttablaðinu 2. des. Read More
Nægja 80 MW til að bjarga Helguvík?
Sigmundur Einarsson
Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi var sagt frá því að nú væri búið að tryggja orku til álbræðslunnar í Helguvík. Bjargvætturinn var sagður vera Landsvirkjun sem ætlar að leggja til umframafl sem til er „í kerfinu“ og ku það nema 60-80 MW.
Samkvæmt fréttinni þarf álbræðslan alls um 450 MW sem er um 150 MW minna en áður var áætlað. HS Orka er sögð munu útvega 250 MW, Orkuveita Reykjavíkur 120-140 MW og Landsvirkun bjargar því sem á vantar, 60-80 MW.
Þetta virðist einfalt. All sýnist klappað og klárt og ekki eftir neinu að bíða. Framkvæmdir ættu að geta hafist strax í dag. Eða hvað? Var þetta orkan sem vantaði til að unnt væri að halda áfram? Fyrir ári síðan var fullyrt að nóg orka væri fyrirliggjandi til að reisa álbræðslu sem þyrfti um 600 MW. Hvað skyldi hafa breyst? Read More
„Saga kapítalismans er vörðuð með ofbeldi“ – viðtal við Samarendra Das
Upplýsingabæklingur til stuðnings hinna ákærðu níumenninga
Stuðningsmenn níumenninganna sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi vegna mótmælaaðgerðar sem átti sér stað þann 8. desember árið 2008, hafa útbúið upplýsingabækling um málið á ensku. Ríkisvaldið hefur gengið svo langt að kalla aðgerðina ógn við sjálfræði þingsins og heldur því uppi ákærum byggðum á 100. grein hegningarlaga, sem hefur í för með sér eins til sextán ára fangelsisdóm verði þau fundin sek um brot á henni, ásamt ákærum um húsbrot og ofbeldi, sem framburður þingvarða og upptökur úr öryggismyndavélum sanna að eru hrein lygi. Lesið nánar um málið og sögusvið þess í bæklingnum.
Smellið hér, eða á forsíðumynd bæklingsins, til að sækja bæklinginn sem pdf-skrá.
Dreifið sem víðast.
Heimsækið stuðningssíðu níumenninganna til að fylgjast með framvindu málsins.
RVK-9 í DV
Í helgarblaði DV helgina 1.-3. október birtist ýtarleg umfjöllun við níumenningana sem eru ákærð fyrir árás á Alþingi. Er þetta eitt af þeim örfáu skiptum þar sem stærri hérlendur fjölmiðill hefur gefið níumenningunum færi á að koma skoðunum sínum varðandi málið á framfæri.
Smellið á myndina eða hér til að hala greininni niður sem pdf-skrá.
Einnig minnum við á stuðningssíðu níumenninganna, rvk9.org.
Oct 13 2010
1 Comment
Frumvinnsla áls – Lýsing á hinni mengandi og orkufreku framleiðslu álbarra
PDF skjali með þessari þýðingu má hala niður hér
Afar sterk efnatengi milli súrefnis og áls í súráli eru ástæða þess að frumframleiðsla á hreinu áli er orkufrekari en frumframleiðsla nokkurs annars málms og raunar orkufrekasti iðnaður sem til er. Framleiðsluferlið, nefnt Hall-Heroult ferlið, hefst á því að súrál er sett í rafgreiningarker sem innihalda bráðið kríólít (Na3AlF6). Rafstraumur er leiddur gegnum kerin með aðstoð kolefnisanóðu og við það rís hitastigið yfir 1200°C. Súrefnið leitar í kolefnis-anóðuna og bráðnu álinu er hellt úr kerinu.
Frumvinnslan er sá hluti framleiðsluferlis áls sem veldur mestri mengun. Bæði er þar um að ræða mengun af völdum loftborinna efna og fasts úrgangs. Í útstreymi frá kerjum í álbræðslum er að finna flúor, bæði sem lofttegundir og ryk, einnig súrál, kolefnismónoxíð (CO), rokgjörn lífræn efni og brennisteins-díoxíð (SO2). Auk þessa inniheldur útstreymið frá ofnunum sem rafskaut eru framleidd í bæði flúoríð, rokgjörn lífræn efni og SO2. Ýmis konar aðferðir eru notaðar til að draga úr þessari mengun, t.d. lokuð ferli og vothreinsun. Vatn mengast einnig við hreinsun báxíts en stór hluti vatnsins er endurnýttur.
Komið að skuldadögum í Helguvík

Sigmundur Einarsson
Álbræðsla í Helguvík hefur verið töluvert til umræðu undanfarið vegna fyrirsjáanlegra tafa á afhendingu orkunnar. Skýringar hagsmunahópa eru allar á sama veg. Stjórnvöld bregða fæti fyrir atvinnuuppbyggingu! HS Orka fær ekki leyfi til að stækka Reykjanesvirkjun! Seinagangur við afgreiðslu skipulagsáætlana! Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ lagður í pólitískt einelti! – O.s.frv.
Umfjöllun fjölmiðla er hefðbundin. Hvorki er vilji né geta til að fjalla um kjarna málsins og stjórnmálamenn óttast óvinsældir. Þeir eru hræddir um að verða kallaðir til ábyrgðar og þora ekki að viðurkenna að verkefnið hafi verið tálsýn frá upphafi.
Aðdragandinn
Þegar áform um dularfulla stálpípuverksmiðju í Helguvík gufuðu upp um miðjan þennan áratug var Norðuráli boðin þar aðstaða fyrir álbræðslu. Norðurál sló til og samdi um kaup á raforku. Skipulag og umhverfismat voru unnin fyrir álbræðslu, orkuver og háspennulínur. Svo kom kreppan og eyðilagði allt. Eða hvað?